Athugið að þessar upplýsingar gilda fyrir bíla frá Ameríku.
Acura/Honda
http://www.ServiceExpress.Honda.com
Honda leyfir endurforritun á tölvum sem tengjast útblæstri í öllum Honda/Acura bifreiðum árgerð 2001 og nýrri. Það eru þrjár kröfur sem þarf að uppfylla til að endurforrita Honda bifreiðar:
1. SAE J2534 hugbúnaður
o Árs áskrift af hugbúnaði kostar 300 dollara.
o Áskriftin nær yfir allar Hondu og Acura bifreiðar.
o Áskriftin veitir eins árs aðgang að Honda og Acura J2534 hugbúnaði, plús PC uppfærslur.
o Hugbúnaður er afhentur yfir internetið (mælt er með ADSL tengingu eða háhraðatengingu vegna stærða á hugbúnaðarskjölum). Ef ekki er til staðar háhraða nettenging þá er hægt að skaffa hugbúnaðinn á geisladiski án aukakostnaðar.
o Endurforritun ætti aðeins að framkvæma samkvæmt Honda og Acura tækniskjölum (service bulletins)sem þeir senda frá sér.
o Þú þarft að vera með virka áskrift til þess að geta keypt J2534 hugbúnað og til að geta nálgast nýjustu sköl um notkun á viðkomandi hugbúnaði til endurforritunar.
2. PC eða fartölva með:
o Windows 2000 eða nýrra
o Internet tengingu (mælt með háhraðatengingu)
3. SAE J2534 búnaður til tengingar milli bíls og tölvu (pass-thru device).
o Búnaðinn (pass-thru device) þarf að kaupa stakann frá þriðja aðila, þar mæli ég með www.verkfaerahusid.is
o Honda í Ameríku mælir ekki með neinum sérstökum J2534 búnaði. Fylgið leiðbeiningum frá framleiðanda J2534 þegar búnaðurinn er notaður.
BMW/MINI
BMW leyfir fullan bilanagreiningar og endurforritunar aðgang ( full diagnostic and re-flash capabilities) frá vefsíðu þeirra. Sumir tilteknir bílar þurfa 20-pinna BMW tengi. Flestir BMW bílar eftir 2000 eru með OBDII tengi. Allir BMW bílar með OBD tengi gera kröfu um 7-8 pinna millistikki til að nota við “pass-thru” búnaðinn til bilanagreiningar og endurforritunar. “Pass-Thru” er til boða fyrir MINI bifreiðar árgerð 2002 og nýrri.
Chrylser/Dodge/Jeep
Chrysler heldur úti fríum tæknilegum þjónustuupplýsingum um endurforritun á vefsíðu sinni. Chrysler leyfir endurforritun á tölvum tengdum útblæstri í gegnum “Pass-Thru” búnað.
Ford/Lincoln/Mercury
Í Ford bifreiðum 1996 og nýrri þá er hægt að endurforrita tölvur hvort sem þær tengjast útblæstri eða ekki. Þar með talið GEM, PATS lyklar, dekkjastærð, ABS, og allar aðrar tölvur sem eru ekki á UBP eða Medium Speed CAN.
Hyundai
Hyundai leyfir endurforritun á tölvum tengdum útblæstri.
Isuzu
Isuzu leyfir endurforritun á tölvum tengdum útblæstri í bifreiðum árgerð 1996 og nýrri. Áskrift þeirra veitir aðgang að þjónustugögnum (bulletins, campaigns ofl.) ásamt upplýsingum um bilanagreiningar, sérverkfæri og kennslu.
KIA
KIA leyfir endurforritun á tölvum tengdum útblæstri í bifreiðum frá 2001 og nýrri.
Mazda
Mazda leyfir endurforritun á PCM og PATS lyklum fyrir allar árgerðir. Mazda bílar framleiddir af Ford bjóða upp á að fleiri tölvur séu endurforritaðar.
Mercedes Benz
Mercedes Benz leyfir endurforritun á tölvum tengdum útblæstri og SNC í bifreiðum árgerð 2004 og nýrri.
Mitsubishi
http://www.mitsubishitechinfo.com
Það er y tengi fáanlegt frá SPX Corporation (Part number MIT47295) , sem er nauðsynlegt fyrir endurforritun á sumum Mitsubishi bifreiðum. Mitsubishi styður J2534 endurforritunarmöguleikann á bifreiðum árgerð 1998 og nýrri.
Porsche
Porsche leyfir endurforritun á “Digital Motor Electronic control unit”. Þeir rukka fyrir hverja bifreið.
Subaru
Subaru leyfir endurforritun á tölvum tengdum útblæstri á bifreiðum árgerð 1999 og nýrri. Sumar bifreiðar þurfa sérstakt tengi E/G-1 eða E/G-2. Athugið vefsíðu þeirra fyrir nánari upplýsingar um hvaða bifreiðar það eru.
Suzuki
Suzuki leyfir ekki J2534 uppfærslur enn sem komið er, ekki þegar þetta er skrifað.
Toyota/Lexus
Toyota leyfir endurforritun á tölvum í bifreiðum árgerð 2001 og nýrri. Áskrift þeirra veitir aðgang að þjónustuupplýsingum, rafmagnsteikningum, tæknilegu kennsluefni, endurforritun og gögnum þessu tengdu.