Hvað er J2534?

SAE J2534 er staðall fyrir samskipti milli tölvu og bifreiðar.  Samkvæmt reglugerðum þá þurfa allir bifreiðaframleiðendur að skaffa J2535 upplýsingar og þjónustu til ALLRA sem vilja endurforrita stjórnbúnað í bifreiðum.  Ef þú átt SAE J2534 búnað fyrir hugbúnaðartengingu þá getur þú endurforritað og í sumum tilfellum, bilanagreint bifreiðar með sömu tækni og framleiðandi.

j2534 diagram

Á síðustu árum hefur EPA, CARB og Evrópusambandið farið fram á það við bifreiðaframleiðendur að stjórnbúnaður bifreiða sem tengist útblæstri (ECM/TCM) sé endurforritanlegur án þess að til þurfi sérstakan og oft mjög dýran verksmiðjubúnað, í þeim tilgangi að koma í veg fyrir skaðlegan útblástur.  Vegna velgengni og einfaldleika J2534 hafa margir framleiðendur nú boðið tækni sína til bilanagreininga og endurforritunar til almennings.

 

Leave a Reply