Af hverju þarftu J2534?

Frá því að OBDII kerfið var kynnt til sögunnar og í aðdraganda að tækni “Hybrid” og rafmagnsbíla “EV” (electric vehicle) hefur tölvum og hugbúnaði í bifreiðum fjölgað á ógnarhraða.  Hugbúnaður í bifreiðum er orðinn einn af stærstu þáttum viðgerða og þjónustu á bifreiðum í dag, þá er ég að tala um uppfærslur á hugbúnaði sem eru kannski eina leiðin til að lagfæra eftirfarandi bilanir.

  • Aksturseiginleika
  • Eldsneytisnýtingu
  • Afltap
  • Bilanakóða
  • Endingu á vélrænum hlutum

Af hverju þarf verkstæðið þitt J2534 hugbúnaðartengingu?

Rannsóknir sýna að 7 af hverjum 10 bifreiðum sem eru á götunni í dag þurfi á endurforritun að halda.  Þeir sem kynna sér J2534 komast að því að þessi tækni er ekki bara vaxandi heldur er hún orðin nauðsynleg í dag.  Ef verkstæðið þitt fjárfestir í J2534 verkfæri þá getur þú notað það til að:

  • Gera við bíla sem eru með eitthvað af ofantöldum vandamálum
  • Haft tekjur af því að bjóða þjónustu sem aðeins umboðin bjóða uppá
  • Bjóða þjónustu sem kemur í veg fyrir að þú missir viðskiptavini þína annað

 P.s.  Ef þú hefur áhuga á svona verkfæri þá mæli ég með því að þú hafir samband við þetta fyrirtæki Verkfærahúsið

 Ert þú tilbúinn að hafna þjónustu sem 7 af hverjum 10 viðskiptavina þinna þurfa á að halda svo að hægt sé að klára viðgerð á bílum þeirra með sæmandi hætti?

Leave a Reply