Viðgerðarþjónusta fyrir handverkfæri 

Oft á tíðum eru menn of fljótir á sér að henda góðum verkfærum og kaupa ný þegar hægt er að gera við þau gömlu fyrir mun minni kostnað.

En í mörgum tilfellum borgar sig heldur ekki að gera við gömlu verkfærin. Til þess að það borgi sig þá þurfa þau að vera frá þekktum framleiðanda sem býður upp á úrval varahluta.

Ef verkfæri kostar nýtt undir 10-15 þús kr. þá er hætta á því að vinna og varahlutir verði dýrari en nýtt verkfæri. En það þarf að meta í hvert skipti.