Starfsemi:

Viðgerðir.is sérhæfir sig í viðgerðum á handverkfærum og hefur verið starfandi síðan í byrjun árs 2006. Frá stofnun og fram á mitt ár 2008 gerðum við eingöngu við Wurth verkfæri. Við sjáum um alla þjónustu fyrir Wurth á þeirra verkfærum, bæði ábyrgðarviðgerðir og almennar viðgerðir. Á miðju ári 2008 var sú ákvörðun tekin að stækka við reksturinn og var ákveðið að taka á móti handverkfærum og tækjum frá öllum helstu framleiðendum.

 

Verkstæði:

Verkstæðið er staðsett að Helluhrauni 14 í sama húsi og verslunin Vaxtarvörur, verkstæðið er innaf versluninni þannig að gengið er í gegnum verslunina. Verslunin Vaxtarvörur og Viðgerðir.is er rekið undir sömu kennitölu. (kort)

 

Starfsmenn:

Ægir Gunnarsson Bifvélavirki
Sími:  615-1535 / 899-9992

Vignir Gunnarsson Iðnvélasmíði og hönnun
Sími: 615-1535